Trúir þú á töfra?
Vigdís Grímsdóttir sýnir í kaffihúsi Gerðubergs
12. október - 20 nóvember
2011
Í nóvember verður haldið Ritþing í Gerðubergi þar sem fjallað verður um líf og rithöfundarferil Vigdísar Grímsdóttur. Um svipað leyti kemur út ný skáldsaga Vigdísar sem heitir Trúir þú á töfra? Aðalpersóna sögunnar er stelpa sem málar rauða ketti en á sýningunni má sjá myndir sem Vigdís málaði samhliða skrifunum.
Gefum Vigdísi orðið:
„Hún fjallar í ósköp stuttu máli um stelpu sem fær leyfi þeirra sem öllu ráða til að mála rauða ketti á múrinn umhverfis þorpið sitt - og - til að taka nú eins virkan þátt í efni sögunnar og ég mögulega gat þá málaði ég myndirnar með henni. Það gerði ég líka í þakklætisskyni fyrir söguna sem hún, í allri einlægni sinni ,sagði mér um líf sitt og fólksins síns í litla þorpinu sem liggur í djúpum dali milli hárra fjalla; þaðan sem liggur enginn vegur.“
Sýningin er opina virka daga frá kl. 10-16 og um helgar frá kl. 13-16.
2011