Söguheimur norrænnar goðafræði


31. október 2010 - 13. mars 2011
Heimur norrænu goðanna er í senn ævintýralegur og heillandi. Gestum sýningarinnar gefst kostur á að ganga inn í söguheim goðafræðinnar og hitta fyrir goð, jötna og skrýtnar skepnur. Ganga má inn í Ginnungagap, setjast á rökstóla goðanna, skríða inn um gin Miðgarðsormsins, máta hásæti Óðins, setjast í vagn Freyju, hitta Þór, skoða fésbókarsíður goðanna eða varpa sér í fang Fenrisúlfsins (og kíkja upp í hann ef maður þorir!). Sýningin höfðar sérstaklega til barna sem eru að kynnast goðafræðinni í fyrsta sinn en þó ekki síður fullorðinna sem þekkja til efniviðarins. Sérstaða sýningarinnar felst í því að gestir eru virkir þátttakendur með því að sjá, heyra, snerta og prófa.
Smellið hér til að skoða Fésbækur goðanna...
Smellið hér til að skoða spil goðanna sem hægt er að prenta út og spila sér til skemmtunar...
Smellið hér til að skoða myndasýningu... (best er að skoða hana í Firefox vafra)
Kristín Ragna Gunnarsdóttir er sýningarstjóri og hönnuður sýningarinnar. Kristín hefur unnið með goðafræðina árum saman, svo sem myndskreytt bækurnar Örlög guðanna og Völuspá. Aðrir sem koma að sýningunni eru m.a. Helga Rún Pálsdóttir búningahönnuður, Gunnlaugur Torfi Stefánsson tónlistarmaður, nemendur við Listaháskóla Íslands og Iðuna fræðslusetur.
Boðið er upp á leiðsagnir fyrir skólahópa. Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar...
Í tengslum við sýninguna er boðið upp á leiðsagnir, námskeið fyrir fullorðna og smiðjur fyrir börn:
Hávamál
1. og 3. nóvember kl. 20-22
Bókmenntanámskeið í umsjón Þórarins Eldjárns.
Upp sé ég koma öðru sinni ...
15. og 17. nóvember kl. 20-22
Námskeið um norrænu goðafræðina sem uppsprettu nýrra verka í umsjón Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur.
Hömrum járn og tökum flugið!
7. nóvember kl. 14-16
Smiðja í umsjón Ilmar Stefánsdóttur þar sem börnum býðst að búa til valsham Freyju og hamar Þórs.
Leiðsögn fyrir barnafjölskyldur
15. janúar kl. 14
Margrét Valdimarsdóttir, verkefnisstjóri, leiðir börn um sýninguna. Á sama tíma býður Kristín Ragna Gunnarsdóttir sýningarstjóri upp á leiðsögn fyrir fullorðna um sýninguna Hávamál.
Ævintýraleg myndlistarsmiðja fyrir hugmyndarík börn á aldrinum 9-12 ára.
29. janúar - 5. mars
Í tengslum við sýninguna Ormurinn ógnarlangi. Sex laugardaga kl. 13-15.
Umsjón: Kristín Ragna Gunnarsdóttir.
Skráning: gerduberg@reykjavik.is Námskeiðsgjald: kr. 9.000.-Sýningin Ormurinn ógnarlangi er hluti af norrænu listahátíðinni ting.
2012